Skref1
- Kexið er mulið smátt í matvinnsluvél. Kókos og bræddu smjöri er síðan blandað saman við.
- Blöndunni er svo þjappað vel ofan í bökunarform eða sambærilegt form. Það er gott að hafa bökunarpappír ofan í forminu svo það sé auðvelt að taka bitana upp úr.
Skref2
- Súkkulaðið er brætt yfir vatnsbaði og því dreift jafnt yfir kexbotninn og súkkulaðieggjunum raðað ofan á.
Skref3
- Páska Gotteríið er síðan kælt í að minnsta kosti klukkustund áður en það er borðið fram.
- Bitarnir geymast síðan í kæli í dágóðan tíma í lokuðu íláti.
Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir