Menu
Skyr límónu pannacotta

Skyr límónu pannacotta

Frískandi og góður eftirréttur.

Innihald

4 skammtar
matarlímsblöð
rjómi frá Gott í matinn
sykur
límóna - fínrifinn börkur og safi
KEA skyr með vanillu

Skref1

  • Leggið matarlímsblöðin í bleyti í 5 mínútur.

Skref2

  • Setjið rjóma, límónubörk og sykur saman í pott og hitið að suðu.
  • Takið af hitanum.
  • Kreistið vatnið úr matarlímsblöðunum og setjið þau saman við heitan rjómann.
  • Hrærið. Látið kólna aðeins.

Skref3

  • Hrærið skyri og límónusafa saman við rjómablönduna.
  • Hellið í fjögur glös eða 4 litlar eftirréttaskálar.
  • Geymið í kæli í a.m.k. þrjá tíma.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir