Menu
Gratíneraður fiskréttur með hrísgrjónum og piparosti

Gratíneraður fiskréttur með hrísgrjónum og piparosti

Einfaldur og fjölskylduvænn fiskréttur með hrísgrjónum, grænmeti og osti.

Gott er að bera fiskréttinn fram með nýbökuðu rúgbrauði og nóg af smjöri.

Innihald

6 skammtar
soðin hrísgrjón
þorskhnakkar
blaðlaukur
blómkálshaus
brokkólíhaus
piparostur
rjómi frá Gott í matinn
karrí
söxuð steinselja
salt, pipar og hvítlauksduft
rifinn pizzaostur frá Gott í matinn
ólífuolía og smjör

Skref1

  • Hitið ofninn í 180°C.
  • Smyrjið eldfast mót (um 30x40 cm) með smjöri og dreifið úr hrísgrjónunum.

Skref2

  • Skolið, þerrið og skerið þorskinn í bita og raðið yfir hrísgrjónin, kryddið með salti og pipar.

Skref3

  • Skerið brokkólí, blómkál og blaðlauk niður, steikið upp úr vel af ólífuolíu og kryddið eftir smekk.
  • Steikið þar til grænmetið fer aðeins að mýkjast og dreifið þá úr því yfir fiskinn í fatinu.

Skref4

  • Hellið um helming rjómans á pönnuna og rífið niður piparostinn.
  • Hrærið þar til osturinn er bráðinn og smakkið til með karrí, steinselju og öðrum kryddum.
  • Þegar osturinn er bráðinn má setja restina af rjómanum út á pönnuna og leyfa aðeins að malla.

Skref5

  • Hellið sósunni þá yfir fiskinn, setjið vel af rifnum pizzaosti yfir allt saman og bakið í um 30 mínútur.
Skref 5

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir