Botn
- Mars, súkkulaði og síróp brætt við vægan hita í potti, passið að hræra vel á meðan svo það verði ekki kekkjótt.
- Rice krispies er bætt ofan í súkkulaðiblönduna og hún svo sett í form og inn í ísskáp.
Fylling
- 3/4 af rjómanum er þeyttur og skyrinu svo blandað saman við þeytta rjómann og smurt ofan á botninn þegar hann hefur kólnað.
Toppur
- Rjómakúlurnar eru settar í pott með restinni af rjómanum og látnar bráðna við vægan hita, passið að hræra vel á meðan.
- Síðan er kakan skreytt með Snickers kurli og karamellu bræðingnum.
- Best er að kæla kökuna í minnsta lagi klukkutíma áður en hún er borin fram.
Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir