Menu
Jarðarberja ostamús með rjóma

Jarðarberja ostamús með rjóma

Það stenst enginn þennan glæsilega eftirrétt!

Innihald

6 skammtar

Botn

hafrakex, hakkað
smjör, bráðið
sykur

Ostamús

frosin jarðaber, afþýdd
rjómi frá Gott í matinn
flórsykur
rjómaostur frá Gott í matinn
flórsykur
vanilludropar

Toppur

dökkt súkkulaði
rjómi frá Gott í matinn
síróp
rjómi frá Gott í matinn
jarðarber

Botn

  • Setjið hafrakex í matvinnsluvél og hakkið gróflega.
  • Bræðið smjör, hellið yfir hafrakexið og hrærið vel.
  • Bætið sykri saman við og hrærið.
  • Setjið 1-2 msk. af hafrakexi í hvert glas eða krukku fyrir sig og setjið til hliðar.

Ostamús

  • Afþýðið 200 g frosin jarðarber og setjið þau í matvinnsluvél og hrærið þar til berin eru orðin að vökva.
  • Þeytið rjóma ásamt 2 msk. af flórsykri þar til rjóminn er orðinn stífur og stendur og setjið til hliðar.
  • Þeytið rjómaostinn þar til hann er orðinn mjúkur og sléttur, bætið flórsykri og vanilludropum saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Bætið því næst jarðarberjunum saman við og hrærið.
  • Blandið rjómanum varlega saman við rjómaostablönduna og hrærið varlega með sleif þar til allt hefur náð að blandast vel saman.
  • Setjið ostamúsina í poka og sprautið henni í hvert glas fyrir sig eða notið matskeið.
  • Setjið í kæli.

Toppur

  • Bræðið dökkt súkkulaði yfir vatnsbaði. Fyrir þá sem vilja skreyta með súkkulaðihjúpuðum jarðarberjum er gott að dýfa jarðarberjunum ofan í súkkulaðið áður en rjómanum og sírópinu er blandað saman við súkkulaðið.
  • Þegar búið er að dýfa jarðarberjunum ofan í er gott að setja þau inn í kæli og láta súkkulaðið storkna.
  • Setjið því næst 4 msk. rjóma og 2 msk. síróp saman við súkkulaðið og hrærið vel. Setjið 1 msk af súkkulaði yfir hverja ostamús.
  • Þeytið rjóma og skreytið hverja mús með rjóma og súkkulaðihjúpuðum jarðarberjum.
  • Geymist í kæli þar til borið er fram.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir