Menu
Bláberjaskyrkaka með brómberjum og súkkulaði

Bláberjaskyrkaka með brómberjum og súkkulaði

Innihald

1 skammtar
hafrakex
smjör
rjómi frá Gott í matinn
Ísey skyr bláber
matarlímsplötur
bláber
brómber
dökkt súkkulaði

Skref1

  • Setjið hafrakex í matvinnsluvél og hakkið þar til kexið er orðið fínmalað.
  • Bræðið smjör og hellið saman við kexið og hrærið vel saman.
  • Hellið kexblöndunni í ferkantað eða hringlaga form og þrýstið niður.

Skref2

  • Þeytið rjómann og hrærið saman við skyrið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Leysið upp matarlímið samkvæmt leiðbeiningum utan á pakkanum og hellið því saman við skyrblönduna og hrærið vel.
  • Setjið því næst 100 g af bláberjum saman við skyrblönduna og hrærið varlega með sleif.
  • Hellið skyrblöndunni yfir kexbotninn og sléttið út með sleif og kælið í 2 klukkustundir eða þar til kakan hefur náð að stífna.

Skref3

  • Skreytið með restinni af bláberjunum og brómberjum og þrýstið þeim lítillega niður.
  • Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og hrærið þar til súkkulaðið hefur náð að bráðna alveg, passið að súkkulaðið sé ekki mjög heitt.
  • Dreifið súkkulaðinu óreglulega yfir berin.
  • Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir