Menu
Burrata og bökuð vínber

Burrata og bökuð vínber

Burrata ostur er einn af mínum uppáhalds ostum. Hér er ég búin að baka vínber í dásamlegum legi, leggja ostinn ofan á eftir eldun og ber fram með ristuðu baguette brauði. Þetta var undursamlegt og góð tilbreyting frá tómötunum sem ég hef mikið notað með burrata hingað til. Þessi uppskrift getur passað vel fyrir um 4 manns sem forréttur eða sem hluti af smáréttaborði.

Innihald

4 skammtar
rauð vínber (steinalaus)
ólífuolía
balsamikedik
hvítlauksrif (rifn)
púðursykur
salt
pipar
basilíka (söxuð)
ristað baguette brauð að eigin vali
burratta mozzarella kúlur

Skref1

  • Byrjið á því að hita ofninn í 220°C grillstillingu.
  • Skolið og þerrið vínberin, takið af greininni.
  • Blandið ólífuolíu, ediki, hvítlauk, púðursykri, salti og pipar saman í skál og hellið yfir vínberin, leyfið að marinerast í að minnsta kosti klukkustund (yfir nótt líka í lagi).

Skref2

  • Skerið baguette brauðið í sneiðar, penslið með ólífuolíu og stráið smá grófu salti yfir.
  • Setjið berin í eldfast mót og setjið bæði vínber og brauð í ofninn á sama tíma.
  • Takið brauðið út eftir um 3-5 mínútur en bakið vínberin í 12-15 mínútur í heildina eða þar til nokkur fara aðeins að krumpast/springa.

Skref3

  • Leyfið vínberjunum aðeins að standa eftir að þau koma úr ofninum og leggið síðan tvær burrata mozzarella kúlur ofan á, setjið smá lög úr botninum á vínberjafatinu yfir ostinn ásamt basilíkunni.
  • Njótið með ristaða baguette brauðinu.
Skref 3

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir