Menu
Bakaður Ostakubbur með ólífum

Bakaður Ostakubbur með ólífum

Virkilega góð og einföld uppskrift með Ostakubbi frá Gott í matinn (áður Fetakubbur).

Gott að bera fram með góðu brauði eða kexi.

Innihald

4 skammtar
Ostakubbur frá Gott í matinn
ólífuolía
sítróna, safinn
hvítlauksrif
svartar ólífur
grænar ólífur
stönglar ferskt rósmarín
salt
pipar

Skref1

  • Skerið ostakubbinn í tvennt og setjið annan helminginn ofan á hinn.
  • Setjið ostinn í eldfast mót.

Skref2

  • Blandið olíu, safa úr sítrónu og hvítlauk saman í skál og hellið yfir ostinn.

Skref3

  • Stráið salti og pipar yfir ostinn.

Skref4

  • Setjið ólífurnar meðfram ostinum ásamt nokkrum sneiðum af sítrónu og rósmarín.

Skref5

  • Bakið í um 20 mínútur við 180 gráðu hita, eða þar til osturinn er farinn að bráðna.
Skref 5

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir