Menu
Bakaðir Camembert ostateningar

Bakaðir Camembert ostateningar

Einfaldur og góður ostaréttur þar sem Kryddostur með Camembert er í aðalhlutverki. Frábær réttur í veisluna, saumaklúbbinn eða afmælið.

Innihald

1 skammtar
Kryddostur með Camembert
hlynsíróp
púðursykur
pekanhnetur
pera
salt
smá pipar

Aðferð

  • Skerið ostinn og peruna niður í teninga og grófsaxið pekanhneturnar.
  • Setjið sykur og síróp saman í pott og hitið við vægan hita þar til sykurinn leysist upp, bætið þá perum, pekanhnetum, salti og pipar í pottinn og leyfið að malla við vægan hita í um 5 mínútur.
  • Setjið ostateninga í lítið eldfast mót á víxl við pekanhnetublönduna og bakið í 190° heitum ofni í 12-15 mínútur.
  • Berið fram með ristuðu baguette brauði og skreytið með timian sé þess óskað.
Aðferð

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir