Kljúfið kjúklingabringurnar eftir endilöngu þannig að þið fáið tvo fremur þunna bita úr hverri bringu. Kryddið með salti og pipar. Bræðið smjör á pönnu og brúnið kjúklingabringurnar vel á báðum hliðum. Takið af pönnunni og geymið á diski til hliðar. Setjið sveppina á pönnuna og steikið í stutta stund. Bætið þá blaðlauknum saman við og steikið aðeins. Hækkið hitann og hellið hvítvíninu á pönnuna, leyfið því að sjóða aðeins niður í 1-2 mínútur. Hellið þá rjómanum á pönnuna ásamt kraftinum og hleypið aftur upp suðunni. Setjið spínatið út í sósuna og leggið kjúklingabringurnar ofan á. Ausið sósunni aðeins yfir bringurnar og leyfið þessu að malla saman þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og sósan hefur aðeins þykknað eða í 5-10 mínútur. Gætið þess að ofelda ekki bringurnar. Smakkið til með salti og pipar.
Gott að bera fram með kartöflumús eða hrísgrjónum.
kjúklingabringur | |
smjör | |
salt og pipar | |
sveppir, skornir í sneiðar | |
blaðlaukur, þunnt skorinn | |
hvítvín | |
rjómi | |
kjúklingakraftur eða 1 teningur | |
ferskt spínat, eða 2-3 |
Höfundur: Helena Gunnarsdóttir