Menu
Waldorfsalat

Waldorfsalat

Ómissandi með jólasteikinni.

Innihald

1 skammtar
græn epli
sellerí
græn vínber
sýrður rjómi frá Gott í matinn (180 g)
rjómi frá Gott í matinn, þeyttur (2-3 msk.)
valhnetur, þurrristaðar á pönnu
smá súkkulaði til að strá yfir salatið

Skref1

  • Kjarnhreinsið eplin, flysjið og skerið í litla bita.
  • Skerið sellerí í litla bita.
  • Skerið vínber í tvennt.

Skref2

  • Grófhakkið hneturnar og þurrristið á pönnu.

Skref3

  • Pískið saman sýrðan rjóma og rjóma.

Skref4

  • Blandið síðan öllu saman í skál og sáldrið smá súkkulaði yfir í lokin.

Skref5

  • Geymið í kæli þar til salatið er borið fram.

Höfundur: Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir