Menu
Tortillur með mexíkóosti, pepperoni og spínati

Tortillur með mexíkóosti, pepperoni og spínati

Innihald

30 skammtar
Stórar tortillukökur
Rjómaostur frá Gott í matinn
Mexíkóostur rifinn
Pepperonisneiðar, saxaðar
Spínat
Rauðlaukur saxaður

Skref1

  • Hitið tortillurnar á pönnu svo það sé auðveldara að vinna með þær.
  • Raðið á bretti eða borð.

Skref2

  • Smyrjið með rjómaosti og stráið mexíkóostinum yfir.
  • Leggið pepperonisneiðarnar á og bætið við spínati og söxuðum rauðlauk.

Skref3

  • Rúllið upp og kælið. Skerið í sneiðar og setjið sýrðan rjóma á toppinn.

Höfundur: Árni Þór Arnórsson