Menu

Innihald

4 skammtar
svínasíða
lárviðarlauf
piparkorn
laukur, skorinn gróft
teningar af svínakjötskrafti eða 2 msk svínakraftur
Flögusalt, t.d. gott sjávarsalt

Skref1

  • Setjið kjötið í stóran pott ásamt lárviðarlaufum, piparkornum, lauk og kjötkraftinum.
  • Hellið vatni yfir þannig að rétt fljóti yfir kjötið.

Skref2

  • Setjið á eldavél og kveikið undir, hleypið suðunni rólega upp (ég nota stillingu 7 af 10). Þegar suðan er komin, lækkið þá vel undir og leyfið kjötinu að malla við vægan hita í um 40 mínútur.

Skref3

  • Hitið ofn í 240 gráður, gjarnan með blæstri.

Skref4

  • Takið kjötið úr pottinum og leggið í fat, puruhliðina upp, leyfið aðeins að rjúka úr því og þerrið með eldhúspappír.
  • Ef það er búið að skera í kjötið, farið þá aftur í rifurnar með beittum hníf, gerið jafnvel fleiri rendur og skerið vel alveg niður að kjötinu.
  • Nuddið svo vel af salti á puruna, og passið að fara vel ofan í rifurnar en líka að hafa salt ofan á skinninu.

Skref5

  • Setjið inn í ofn og látið puruna stökkna og "poppast".
  • Þetta getur tekið 20-40 mínútur.
  • Fylgist vel með kjötinu.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir