Menu
Sítrónubollakökur með fersku sítrónukremi

Sítrónubollakökur með fersku sítrónukremi

Ferskar, sætar og sumarlegar.

Innihald

12 skammtar

Bollakökur

smjör við stofuhita
sykur
egg
vanilludropar
hveiti
lyftiduft
salt
mjólk
sítrónur, börkur og safi

Sítrónukrem

smjör við stofuhita
flórsykur
mjólk
sítrónudropar

Bollakökur

  • Stillið ofninn á 180 gráðu hita og raðið bollakökuformum ofan í bökunarform og setjið á ofnplötu.
  • Hrærið smjör og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt.
  • Bætið eggjum saman við einu í senn og hrærið vel á milli ásamt vanilludropum. Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og bætið saman við deigið smátt og smátt í einu ásamt mjólkinni.
  • Setjið því næst börkinn af sítrónunum ásamt safanum og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Sprautið deiginu í bollakökuformin og passið að fylla þau ekki meira en 2/3 eða um 2 msk. í hvert form.
  • Bakið í 18-20 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar.
  • Kælið kökurnar alveg áður en þið setjið krem á þær.

Sítrónukrem

  • Hrærið smjörið þar til létt og ljóst.
  • Blandið flórsykrinum saman við smátt og smátt í einu og hrærið vel á milli.
  • Bætið mjólkinni saman við ásamt sítrónudropum og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman og kremið er orðið mjúkt og slétt.
  • Sprautið kreminu á hverja köku fyrir sig.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir