Menu
Oreo kleinuhringir með rjómaostakremi

Oreo kleinuhringir með rjómaostakremi

Innihald

15 skammtar
hveiti
kakó
púðursykur
matarsódi
lyftiduft
salt
egg
mjólk
olía (t.d. sólblóma)
vanilludropar
Oreo kexkökur

Rjómaostakrem:

hreinn rjómaostur frá Gott í matinn
mjólk
flórsykur
vanilludropar
Oreo kexkökur, 4-6 stk.

Kleinuhringir

  • Hitið ofninn í 180 gráður og smyrjið kleinuhringjaform að innan með smjöri eða matarolíu.
  • Blandið saman eggjum, mjólk, olíu og vanilludropum og hrærið vel saman.
  • Setjið hveiti, kakó, sykur, matarsóda, lyftiduft og salt saman í skál og hrærið saman.
  • Blandið öllu saman í eina skál og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Grófsaxið Oreo kexkökurnar og hrærið þeim saman við deigið.
  • Setjið deigið í sprautupoka og sprautið deiginu í kleinuhringjaformið.
  • Passið að fylla formin ekki nema um 2/3 því annars fer deigið upp fyrir brúnina á forminu.
  • Bakið í 10 mínútur eða þar til tannstöngull kemur þurr upp úr kleinuhringjunum.
  • Kælið kleinuhringina alveg áður en þið setjið kremið á.

Rjómaostakrem

  • Setjið allt hráefnið saman í skál og hrærið þar til kremið verður silkimjúkt.
  • Dýfið kleinuhringjunum ofan í kremið og skreytið með grófsöxuðu Oreo kexi.
  • Best er að borða kleinuhringina strax, ef ekki þá þarf að geyma þá á loftþéttum stað, t.d. í boxi.
  • Ef þið ætlið að bjóða þá fram daginn eftir er gott að baka kleinuhringina daginn áður, geyma þá t.d. inni í ofninum og setja kremið á samdægurs.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir