Menu
Karamellupopp

Karamellupopp

Ef þú hefur ekki smakkað karamellupopp þá er ekkert annað í stöðunni en að gera það... núna!

Innihald

1 skammtar
poppað poppkorn
hunangsristaðar hnetur, eða hvaða hnetur sem er, má líka sleppa
smjör
púðursykur
síróp
gróft salt
matarsódi
vanilludropar

Skref1

  • Best er að nota heimatilbúið poppkorn en það sleppur þó alveg að nota örbylgjupopp.
  • Setjið poppið í skál ásamt skornum hnetum og blandið því saman.
  • Hitið smjörið, púðursykurinn, sírópið og saltið í litlum potti á meðalháum hita.
  • Þegar allt hefur blandast vel saman og blandan farin að sjóða er hitinn hækkaður og karamellan látin malla í rúmar 5 mínútur. Hrærið allan tímann.
  • Takið pottinn af hellunni og bætið þá matarsódanum og vanilludropunum saman við og hrærið vel, karamellan þykknar vel við þetta.

Skref2

  • Hellið karamellunni yfir poppið og hneturnar, setjið smátt og smátt af karamellunni yfir poppið og hrærið vel á milli. Karamellan er fljót að storkna og því þurfið þið að hafa hraðar hendur þegar þið blandið þessu öllu saman.
  • Setjið bökunarpappír á ofnplötu, hellið poppinu yfir og dreifið vel úr því. Það er allt í lagi þótt allt poppið sé ekki með karamellu því hún hitnar og bráðnar aftur inni í ofninum og þá hafið þið tækifæri til þess að hræra þessu öllu vel saman.
  • Bakið poppið í klukkustund við 120°C og hrærið í því á u.þ.b. 15 mínútna fresti.
  • Eftir klukkustund skuluð þið taka poppið úr ofninum og láta kólna, karamellan þornar við þetta og gerir poppið stökkt og gott.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir