Menu
Jarðarberjaostakaka sem ekki þarf að baka

Jarðarberjaostakaka sem ekki þarf að baka

Fersk, sæt og góð.

Innihald

12 skammtar
hafrakex
smjör, bráðið
jarðarber
sykur
límóna, safi og börkur
marscarpone ostur við stofuhita
rjómaostur frá Gott í matinn við stofuhita
rjómi frá Gott í matinn

Skraut

jarðarber

Skref1

  • Hakkið hafrakexið í matvinnsluvél, bræðið smjörið og hellið saman við hafrakexið.
  • Þrýstið hafrakexblöndunni ofan í hringlaga meðalstór form og aðeins upp á hliðarnar.
  • Setjið formið í frysti á meðan þið undirbúið ostakökuna.

Skref2

  • Maukið jarðaber, límónusafa og límónubörk saman í matvinnsluvél.
  • Hrærið ostana saman þar til þeir eru orðnir mjúkir og sléttir, bætið rjómanum saman við og hrærið saman.
  • Bætið jarðarberjamaukinu saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.

Skref3

  • Hellið ostablöndunni í yfir hafrakexbotninn og dreifið vel úr.
  • Setjið plastfilmu yfir og frystið í klukkustund.
  • Takið kökuna úr frystinum 20 mínútum áður en hún er borin fram.
  • Skreytið með jarðarberjum.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir