Menu
Hrekkjavöku ostakaka

Hrekkjavöku ostakaka

Hryllilega góð!

Innihald

12 skammtar

Botn:

mulið Oreo kex (tveir 154 g pakkar)
smjör
salt
vanillusykur

Ostakaka:

hreinn rjómaostur frá Gott í matinn, við stofuhita
sykur
vanillusykur
gelatínblöð
sjóðandi vatn (til að leysa upp gelatínið)
þeyttur rjómi frá Gott í matinn
Mars súkkulaðistykki, skorin í litla bita

Súkkulaði ganaché:

suðusúkkulaði (smátt saxað)
rjómi frá Gott í matinn

Skref1

  • Byrjið á botninum.
  • Blandið saman muldu Oreo, salti, vanillusykri og bræddu smjöri.
  • Klæðið botn (og hliðar ef vill) á 20-22 cm springformi með bökunarpappír og þjappið blöndunni á botninn og aðeins upp hliðarnar.
  • Setjið í kæli á meðan kakan sjálf er útbúin.

Skref2

  • Leggið gelatínblöð í kalt vatn í um 10 mínútur, kreistið þá vatnið úr og setjið í sjóðandi vatn (60 ml).
  • Hrærið vel saman og tryggið að blandan sé uppleyst og leyfið því næst að ná stofuhita.

Skref3

  • Þeytið rjómann og geymið.
  • Þeytið því næst saman rjómaost, sykur og vanillusykur þar til létt og ljóst.
  • Hellið gelatínblöndunni saman við rjómaostablöndunni þegar hún hefur kólnað niður og vefjið síðan rjómanum saman við með sleikju.

Skref4

  • Útbúið ganaché.
  • Hitið rjómann að suðu og hellið yfir smátt saxað súkkulaðið, leyfið að standa í 2 mínútur og hrærið svo saman.
  • Leyfið að kólna aðeins þar til það fer að þykkna og setjið þá í sprautupoka/klippið lítið gat á zip lock poka til að sprauta köngulóarvefinn á þegar búið er að setja kökuna saman.

Skref5

  • Skiptið ostakökublöndunni í tvo hluta og hrærið Mars bitunum saman við annan hlutann.
  • Hellið fyrst hlutanum með Mars bitunum á botninn og því næst hvíta hlutanum og sléttið vel úr í forminu.
  • Sprautið ganaché á miðjuna og svo í hringi með um það bil 1,5 cm á milli. Dragið þá prjón í gegn frá miðjunni og myndið þannig köngulóarvef.

Skref6

  • Kælið í að minnsta kosti 4 klst. eða yfir nótt og losið þá úr forminu og færið yfir á disk.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir