Menu
Hægeldað lambalæri með kryddjurtasósu, fetaosti og frískri jógúrtsósu

Hægeldað lambalæri með kryddjurtasósu, fetaosti og frískri jógúrtsósu

Helgar eru tími hægeldunar. Þægilegt að setja vænt kjöt í ofninn og láta það malla á meðan öðrum helgarhnöppum er hneppt. Kjötið verður dásamlega mjúkt.

Ég gerði báðar sósurnar um leið og lærið fór inn. Jógúrtsósan fór í ísskápin en kryddsósan var geymd við stofuhita. Ákaflega þægilegt, því um kvöldið átti ég bara eftir að setja réttinn saman.

Innihald

6 skammtar
stórt lambalæri
laukar, skornir í fernt
hvítlaukar, skornir í tvennt og 12 rif
nokkrar rósmaríngreinar
ólífuolía
sjávarsalt og svartur pipar

Kryddjurtasósa:

basilíka, stórt handfylli
ítölsk blaðsteinselja, stórt handfylli
mynta, stórt handfylli
Dijon sinnep
sherry vínedik eða balsamik edik
kapers, skolað fyrst undir vatni
ansjósuflök
sítróna, fínrifinn börkur og safi
ólífuolía

Frískandi jógúrtsósa:

thahinimauk
sjóðandi vatn
hvítlauksrif
hrein jógúrt frá Gott í matinn
sítrónusafi
ólífuolía
sjávarsalt og svartur pipar

Meðlæti:

fetakubbur frá Gott í matinn
furuhnetur, ristaðar
klettasalat
sítrónubátar

Hægeldað lambalæri

  • Ég byrjaði á því að stilla ofninn á 150°.
  • Ég fituhreinsaði lærið og skar í það tólf skurði hist og her. Ofan í þá fóru hvítlauksrif og rósmarín. Ég tók sex greinar og skar í tvennt og vafði utan um hvítlauksrifin.
  • Lambalærið var síðan baðað í ólívuolíu, saltað og piprað vel.
  • Í ofnskúffuna fóru laukarnir. Alls ekki taka utan af hvítlauknum, bara skera í tvennt. Ofan á laukana fóru svo nálar af tveimur rósmaríngreinum.
  • Loks fór lambalærið ofan á þetta fína laukbeð. Ég breiddi síðan álpappír yfir og festi lauslega.
  • Nú hófst hinn langi eldunartími með tilheyrandi ilmi daglangt. Ég athugaði lærið mitt af og til. Ef það byrjar að þorna þá er gott að skvetta örlitlu vatni yfir, en ekki verra ef þið eigið afgangs hvítvín í staðinn.
  • Eldunartími: 8 klst.

Kryddjurtasósa

  • Ég setti öll hráefnin sem áttu að fara í kryddjurtasósuna í blandarann minn og maukaði.
  • Síðan smakkaði ég sósuna til eftir á með salti og pipar.
  • Tilbúið.

Frískandi jógúrtsósa

  • Fyrst fór thainimaukið í blandarann og þá vatnið.
  • Þetta maukaði ég saman, þar til slétt og fellt.
  • Síðan fóru hin hráefnin saman við og hrært.
  • Smakkað til með salti og pipar.

Samsetning

  • Ég raðaði klettasalati á stórt fat.
  • Ofan á það fór lambakjötið.
  • Þá dreifði ég kryddjurtasósunni jafnt yfir og síðan muldi ég fetaostinn. Ég notaði ekki alveg allan kubbinn en hafði restina af honum til hliðar fyrir þá matargesti sem vildu meira.
  • Loks sáldraði ég furuhnetum, smá sítrónuberki og saxaðri myntu yfir.
  • Þá var rétturinn tilbúinn og borinn fram með jógúrtsósunni og sítrónubátum.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir