Menu
Fylltur brauðhleifur

Fylltur brauðhleifur

Fallegt á borði og einfalt í matargerð. Gestir rífa sér einn og einn bita af heitu brauði með smjöri, kryddjurtum og mozzarella osti. Athugið að þetta brauð má gera daginn áður og geyma í kæli þar til því er stungið í ofn.

Innihald

1 skammtar
Góður og glænýr brauðhleifur
Mjúkt smjör
Steinselja, smátt söxuð
Mosarellakúla, söxuð
Rifinn Goðdala Feykir
Sjávarsalt
Ferskt rósmarín

Skref1

  • Hitið ofn í 200 gráður.
  • Skerið langsum og þversum skurði ofan í brauðið, fjöldi skurða fer eftir stærð brauðhleifs, en þannig að hver biti sé um 1 ½ til 2 cm.
  • Gætið að því að skera það ekki alveg niður svo það fari ekki í sundur!

Skref2

  • Takið undir brauðið og glennið það í sundur; með því er auðvelt að smyrja brauðið með mjúku smjöri, strá steinselju ofan í það, dreifa mozzarella ostinum, strá rifnum Goðdal Feyki yfir og ofan í ásamt smá salti. Stingið rósmaríngreinum hér og þar.

Skref3

  • Stingið í ofn og bakið þar til brauðið er vel heitt og osturinn vel bráðinn.
  • Berið strax fram.

Höfundur: Halla Bára Gestsdóttir