Menu
Vanilluskyrkaka með möndlum og hvítu súkkulaði

Vanilluskyrkaka með möndlum og hvítu súkkulaði

Innihald

12 skammtar
Lu Bagstone Duo, karamellusykrað- og möndlu kex
smjör, bráðið
KEA skyr vanillu
rjómi frá Gott í matinn
vanillusykur
flórsykur
hvítt súkkulaði, bráðið

Toppur

möndlur
Toblerone

Skref1

  • Setjið Lu kex í matvinnsluvél og hakkið þar til kexið er orðið fínmalað.
  • Bræðið smjör og hellið saman við kexið og hrærið vel saman.
  • Hellið kexblöndunni í hringlaga form um 24 cm stórt og þrýstið því vel niður í botninn og upp á hliðar formsins.
  • Gott er að nota botninn á glasi til þess að þrýsta kexinu vel niður.
  • Setjið formið inn í ísskáp á meðan þið undirbúið skyrblönduna.

Skref2

  • Bræðið hvítt súkkulaði yfir vatnsbaði og hrærið stanslaust þar til súkkulaðið hefur náð að bráðna alveg og kælið.
  • Þeytið rjóma og hrærið saman við vanilluskyrið.
  • Setjið vanillusykur og flórsykur saman við og hrærið.
  • Hellið því næst hvíta súkkulaðinu saman við og hrærið þar til allt hefur náð að blandast vel saman.

Skref3

  • Hellið skyrblöndunni yfir kexbotninn og sléttið út með sleif.
  • Grófsaxið möndlur og Toblerone og setjið jafnt og þétt yfir kökuna.
  • Geymið í kæli þar til kakan er borin fram.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir