Menu
Sá klassíski - tvöfaldur borgari

Sá klassíski - tvöfaldur borgari

Þegar einn hamborgari er bara ekki nóg!

Innihald

4 skammtar

Klassískur borgar

beikonsneiðar
rauðlaukur í sneiðum
BBQ-sósa
gráðaostur
Gottaostur í sneiðum
kartöfluflögur eða kartöflustrá
kokteilsósa
hamborgarabrauð
hamborgarar

Aðferð

  • Steikið beikonið á pönnu og geymið.
  • Stingið grillpinna í gegnum rauðlaukssneiðarnar, penslið með olíu og grillið á báðum hliðum, penslið laukinn með BBQ-sósu rétt undir lokin.
  • Grillið borgarana eftir smekk, tvo á mann.
  • Leggið ostinn ofan á borgarana þegar 1-2 mínútur eru eftir af steikingartímanum og látið hann bráðna örlítið.
  • Hitið brauðið á sama tíma á efri grind grillsins, smyrjið ríflega af sósunni á brauðin.
  • Raðið svo borgaranum saman.
  • Berið fram með grilluðum kartöflubátum

Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir