Menu
Lúxus helgarbröns

Lúxus helgarbröns

Það er gaman að gera sér dagamun um helgar og bjóða fjölskyldunni upp á bröns, en hérna eru nokkrar hugmyndir sem hægt er að styðjast við.

Innihald

2 skammtar

Amerískar pönnukökur með ávaxtasalati

hveiti
lyftiduft
klípa af salti
sykur
smjör, brætt
matreiðslurjómi frá Gott í matinn, MS
hrein jógúrt frá Gott í matinn, MS
egg og 3 eggjahvítur
smjör til steikingar
Meðlæti:
hrein jógúrt frá Gott í matinn, MS
ávextir að eigin vali, skornir í litla bita, t.d. jarðarber, epli, bananar og bláber.

Grísk jógúrt með múslí og hunangi

grísk jógúrt frá Gott í matinn, MS
múslí
hunang, fljótandi

Melónusalat með fetaosti

lítil vatnsmelóna
fetakubbur frá Gott í matinn, MS
myntublöð til skreytingar

Morgun-boozt með hreinni jógúrt

hrein jógúrt frá Gott í matinn, MS
frosin eða fersk bláber
banani
engifer, fínrifið
handfylli af klökum

Amerískar pönnukökur með ávaxtasalati

  • Blandið saman í skál hveiti, lyftidufti, salti og sykri. Léttþeytið saman matreiðslurjóma, jógúrt, bræddu smjöri og einu eggi í annarri skál. Hrærið síðan saman við hveitið. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við deigið.
  • Látið deigið standa í skálinni 30 mínútur.
  • Bræðið klípu af smjöri á pönnu og steikið litlar kökur (um 8-10 cm í ummál og 5 mm á þykkt) Best er að steikja kökurnar á vægum hita, snúið kökunum við þegar deigið er byrjað að þorna í gegn. Haldið þeim heitum undir álpappír í 80°C heitum ofni þar til að allar kökurnar eru steiktar.
  • Berið pönnukökurnar fram með niðurskornum ávöxtum og hreinni jógúrt.

Grísk jógúrt með múslí og hunangi

  • Skiptið jógúrtinni á milli tveggja skála eða glasa.
  • Sáldrið múslí yfir ásamt hunangi.

Melónusalat með fetaosti

  • Skerið vatnsmelónuna og fetakubbinn í 1 cm bita og blandið til helminga.
  • Berið fram í litlum skálum eða glösum.
  • Skreytið með myntublöðum.

Morgun-boozt með hreinni jógúrt

  • Handfylli af klökum.
  • Þeytið saman með sprota eða matvinnsluvél.
  • Hellið í glös og berið fram.

Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir