Menu
Hamborgari með piparostafyllingu

Hamborgari með piparostafyllingu

Algjör lúxusborgari sem vert er að eyða tíma í sem og njóta. Piparosturinn gefur mjúkt, kremkennt og kryddað bragð í borgarann sem er gott á móti sætu og söltu í lauknum og beikoninu.

Innihald

4 skammtar

Hamborgarar

vandað nautahakk
steinselja, söxuð
brauðmylsna
piparostur, skorinn í litla teninga, um 5-8 teningar í hvern borgara
dijon hunangssinnep
egg
sjávarsalt
piparostur, skorinn í þunnar sneiðar (ofan á steiktan hamborgarann)
snöggsteikt beikon, smátt saxað

Rauðlaukur í ediki - meðlæti

rauðlaukur, sneiddur örþunnt
hvítvíns- eða rauðvínsedik
sykur
salt

Annað meðlæti

majones
stór og rauður tómatur, skorinn í vænar sneiðar
ferskt og brakandi salat, ekki iceberg heldur meira grænt
rauðlaukur í þunnum sneiðum
súrar gúrkur, litlar og heilar, skornar í sneiðar endilangt
vönduð hamborgarabrauð

Hamborgarar

  • Hrærið allt hráefnið saman í hamborgarana.
  • Mótið hamborgara í þeirri stærð sem þið kjósið og geymið í ísskáp í a.m.k. klukkustund áður en þeir eru steiktir eða grillaðir.
  • Kjötið dugar í 4-6 hamborgara eftir því hvað fólk vill hafa þá þykka.
  • Steikið borgarana á pönnu, eða grillið, þar til þeir hafa lokað sér vel.
  • Leggið á þá sneiðar af piparosti og smátt söxuðu beikoni.
  • Stingið borgurunum í heitan ofn í nokkrar mínútur, eða þar til osturinn ofan á er mjúkur og passlega bráðinn og borgarinn eldaður að smekk hvers og eins.

Rauðlaukur í ediki

  • Hrærið allt hráefnið saman og látið standa í a.m.k. klukkustund áður en laukurinn er settur á hamborgarann.
  • Rauðlaukinn má líka bera fram á borgaranum án þess að fara þessa leiðina en hún skemmir ekki!

Samsetning

  • Smyrjið brauðin með vönduðu majónesi.
  • Leggið salatblað á neðra brauðið og væna tómatsneið ofan á, þá borgarann.
  • Ofan á borgarann fer rauðlaukurinn, ofan á hann fara gúrkurnar og þá efra brauðið.

Höfundur: Halla Bára Gestsdóttir