Menu
Snittur með camembert og sætri peru

Snittur með camembert og sætri peru

Ekki bara góðar heldur virkilega lekkerar snittur sem sóma sér á hvaða veisluborði sem er. 

Innihald

1 skammtar
baguette brauð
Camembert ostur
pera
Klettasalat (um ½ poki)
Ristaðar furuhnetur (um ½ poki)
Ólífuolía
Hvítlauksduft
Gróft salt
Sykur og smjör til að brúna perusneiðarnar

Aðferð

  • Hitið ofninn í 200°C
  • Skerið brauðið á ská í sneiðar, penslið með ólífuolíu, stráið hvítlauksdufti og grófu salti yfir. Ristið í um 3 mínútur í ofni við 200°C.
  • Kælið brauðið aðeins og setjið klettasalat yfir hverja sneið.
  • Skerið peruna í sneiðar sem passa brauðstærðinni ykkar (ekki of þykkar).
  • Stráið sykri á pönnu, hitið þar til hann bráðnar og bætið þá smjörklípu saman við og lækkið hitann.
  • Brúnið perusneiðarnar á báðum hliðum, þegar þið snúið er Camenbert sneið lögð á hverja perusneið þar til osturinn fer aðeins að bráðna.
  • Þá er peru/Camenbertsneiðin færð yfir á snittuna, ofan á klettasalatið.
  • Ristuðum furuhnetum er að lokum stráð yfir.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir