Menu
Síróp og súkkulaðibita bollakökur með Nutella kremi

Síróp og súkkulaðibita bollakökur með Nutella kremi

Innihald

20 skammtar

Kökur

hveiti
lyftiduft
maldon salt
smjör við stofuhita
sykur
egg
vanilludropar
mjólk
síróp
súkkulaði (100-150 g fer eftir því hversu mikið þú vilt)

Nutellarem

smjör við stofuhita
Nutella
vanilludropar
flórsykur
rjómi frá Gott í matinn
smá salt

Bollakökur

  • Hitaðu ofninn í 180 gráður og raðaðu upp bollakökuformum.
  • Blandaðu saman hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og settu til hliðar.
  • Hrærðu smjörið og sykurinn vel saman.
  • Bættu eggjum saman við, einu í einu og hrærðu vel á milli.
  • Blandaðu vanilludropunum saman við mjólkina.
  • Bættu saman við hveitiblöndunni og mjólkurblöndunni smá og smá í einu og hrærðu vel á milli.
  • Bættu saman við sírópinu og hrærðu á lágum hraða þangað til það er rétt svo blandað saman við deigið.
  • Bættu saman við súkkulaðibitunum og hrærðu með sleif.
  • Settu deigið í formin og reyndu að fylla þau ekki meira en 2/3, bakið í u .þ.b. 20 mínútur. Gott er að fylgjast vel með þeim eftir rúmar 15 mínútur, þar sem þú vilt alls ekki baka þær of lengi. Láttu kökurnar kólna alveg áður en þú setur kremið á.
  • Krem

Nutellakrem

  • Gott er að gera tvöfalda uppskrift af kreminu til að sprauta því á kökurnar.
  • Hrærðu smjörið og Nutella vel saman, eða í um 3-4 mín.
  • Bættu flórsykrinum saman við smá og smá í einu.
  • Blandaðu saman við salti, vanilludropum og rjóma, bættu meiri rjóma við kremið ef þér finnst það of þykkt.
  • Hrærðu kremið vel í rúmar 3. mín. eða þangað til það er orðið fallegt og mjúkt.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir