Aðferð
- Leysið gerið upp í vatninu. Setjið sykur og salt saman við. Bætið hveiti út í smátt og smátt eða þar til deigið er meðfærilegt og óklístrað. Hnoðið stutta stund. Smyrjið hreina skál með ólífuolíu og setjið deigið í hana. Hyljið með rökum klút og látið hefast á hlýjum stað í klukkutíma.
- Blandið öllu saman sem á að fara í kjötbollurnar. Smakkið til með pipar og salti. Blandið saman með höndunum. Mótið um 36 litlar kjötbollur.
- Snúið ykkur að sósunni. Blandið rjóma, parmesanosti og sítrónusafa saman og látið standa í 5 mínútur.
- Skiptið deiginu í fjóra hluta eða notið það heilt. Fletjið út og leggið á bökunarplötu klædda bökunarpappír. Setjið sósuna á botnana/botninn. Sáldrið rauðlauk yfir og piprið. Raðið síðan kjötbollunum ofan á. Bakið í um 15 mínútur við 225°, 200° á blæstri. Sáldrið ítalskri steinselju yfir og parmesanosti ef vill.
Höfundur: Erna Sverrisdóttir