Menu
Grilluð ostapizza með chillismjöri og apríkósum

Grilluð ostapizza með chillismjöri og apríkósum

Hefur þú prófað að setja ljúffenga Dalaosta og ferskar apríkóskur á pizzuna þína? Ef ekki þarftu klárlega að prófa þessa samsetningu því hún er sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana. 

Innihald

1 skammtar
tilbúið pizzadeig
Dala Kastali, skorinn í litla bita
Óðals Búri, rifinn
ferskar apríkósur, skornar í sneiðar (líka gott að nota ferskjur eða nektarínur)
góð handfylli ferskt basil og/eða klettasalat

Chilismjör:

smjör
chillimauk eða 1 saxaður ferskur chillipipar (minna ef þið viljið ekki sterkt smjör)
hvítlauksrif, smátt saxað
fersk steinselja
smá sjávarsalt

Skref1

  • Fletjið pizzadeigið út þannig að pizzan sé dálítið þykk, (svipuð og naanbrauð).

Skref2

  • Penslið chillismjöri báðum megin.

Skref3

  • Hitið grill við meðalhita og leggið pizzadeigið beint á grillið.
  • Þegar þið sjáið loftbólur myndast á yfirborðinu snúið þá við.

Skref4

  • Dreifið báðum ostum vel yfir pizzuna og lokið grillinu þar til osturinn er bráðnaður og pizzubotninn alveg bakaður í gegn.

Skref5

  • Toppið með apríkósum og fersku basil eða klettasalati og berið fram strax.

Chilismjör

  • Setjið allt saman í pott og hrærið þar til smjörið er bráðnað.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir