Menu
Perusalat með fíkjum, hráskinku, camembert-rjómasósu og karamelluvalhnetum

Perusalat með fíkjum, hráskinku, camembert-rjómasósu og karamelluvalhnetum

Innihald

6 skammtar

Camembert-rjómasósa:

camembert, skorinn í bita
rjómi eða matreiðslurjómi
Svartur pipar

Karamelluvalhnetur:

sykur
smjör
sjávarsalt á hnífsoddi
valhnetur

Salat:

Ríflegt handfylli af klettasalati
stórar perur, skornar í þunnar sneiðar
örlítill sítrónusafi
ólífuolía
ferskar fíkjur, skornar í báta
Nokkur bláber eða brómber
Hráskinka eftir smekk

Aðferð

  • Bræðið saman á pönnu sykur og smjör. Veltið valhnetum upp úr þar til klístrað. Saltið. Setjið til hliðar.
  • Hitið rjóma í potti á lágum hita. Setjið camembert út í og látið hann bráðna. Hrærið og piprið.
  • Dreifið klettasalati á fat. Setjið perubita yfir. Kreistið smá sítrónusafa yfir og dreypið á með ólívuolíu. Raðið þá fíkjum, hráskinku, bláberjum og valhnetum þar ofan á. Toppið loks með ostasósunni. Berið fram með súrdeigsbrauði.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir