Menu
Spagettí með risarækjum í hvítvíns rjómasósu

Spagettí með risarækjum í hvítvíns rjómasósu

Hér er á ferðinni uppskrift að sérlega sparilegu og ljúffengu risarækju pasta. Þetta er réttur sem sómir sér vel í matarboði eða bara á fimmtudagskvöldi fyrir fjölskylduna.

Innihald

4 skammtar
spagettí
hráar risarækjur, skelflettar og hreinsaðar
skallottulaukar, smátt saxaðir
hvítlauksrif, smátt söxuð
þurrkaðar chilliflögur eða ½ ferskur chilli smátt saxaður (má sleppa)
glas hvítvín (2 dl)
dós niðursoðnir saxaðir tómatar
rjómi frá Gott í matinn
Fersk steinselja og sítróna
Smjör, ólífuolía og salt og pipar

Aðferð

  • Byrjið á að setja vatn í stóran pott og sjóða pastað eftir leiðbeiningum á umbúðum. Á meðan það sýður er sósan gerð. 
  • Kryddið risarækjurnar með salti og pipar og steikið á vel heitri pönnu upp úr smjöri og smá olíu, takið af pönnunni og setjið til hliðar.
  • Setjið laukinn, hvítlaukinn og chilli á pönnuna og mýkið aðeins í 2-3 mínútur, kryddið með salti og  smá pipar.
  • Hellið hvítvíni yfir, hleypið suðunni upp og látið sjóða niður í nokkrar mínútur eða þar til vínið hefur minnkað um helming.
  • Hellið tómötunum út á pönnuna ásamt rjóma, salti og pipar, hleypið suðunni upp og smakkið til.
  • Skerið rækjurnar í hæfilega stóra munnbita og setjið út í sósuna. Saxið steinseljuna og setjið út í.
  • Setjið pastað að lokum saman við og blandið vel saman.
  • Ef sósan er of þykk er gott að nota dálítið af pastavatninu til að þynna.
  • Berið fram, gott er að kreista smá sítrónu yfir að lokum.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir