Menu
Ofnbakað pasta með blómkáli og beikoni

Ofnbakað pasta með blómkáli og beikoni

Innihald

4 skammtar
súrdeigsbrauð, skorið í teninga
beikon, fínsaxað
hvítlauksolía, eða ólífuolía
pasta, t.d. Penne, slaufur eða skrúfur
blómkál, skorið í litla vendi
rifinn gratínostur frá Gott í matinn
sýrður rjómi 18 % frá Gott í matinn
sjávarsalt og svartur pipar
ferskar timiangreinar, má sleppa

Aðferð

  • Stillið ofninn á 180°.
  • Blandið brauðteningum, olíu og beikoni saman í skál. Kryddið með svörtum pipar. Hrærið varlega saman.
  • Setjið pastað í sjóðandi saltvatn og sjóðið í 6 mínútur. Bætið þá blómkálinu saman við vatnið og látið malla áfram í 2 mínútur. Takið 3 ½ dl af vatninu frá og geymið.
  • Hellið pastanu og blómkálinu í sigti og látið renna vel af því.
  • Hrærið saman í pottinum vatninu sem þið tókuð frá, sýrða rjómanum og ostinum. Smakkið til með salti.
  • Blandið pastanu og blómkálinu varlega saman.
  • Hellið í smjörsmurt eldfast form og sáldrið beikon-brauðblöndunni yfir ásamt smá auka gratínosti og timian ef vill.
  • Bakið í 15-20 mínútur.
  • Gott er að láta réttinn standa í 10 mínútur áður en hann er borinn fram.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir