Menu
Páskakaka með smjörkremi

Páskakaka með smjörkremi

Páskaleg kaka sem er fullkomin með kaffibollanum.

Innihald

12 skammtar

Kökubotnar:

Egg
Sykur
Hveiti
Kakó
Kartöflumjöl
Lyftiduft

Smjörkrem:

Íslenskt smjör við stofuhita
Flórsykur
Vanilludropar
Rjómi frá Gott í matinn (4-6 msk. eftir því hvað þú vilt hafa smjörkremið þykkt)
Matarlitir - gulur, rauður og blár

Botnar

  • Ofn hitaður í 180°C, ég nota blástur.
  • Egg og sykur þeytt saman þar til blandan verður létt og ljós.
  • Þurrefnum blandað saman við með sleikju.
  • Skiptið deiginu jafnt í tvö form og bakið við 180°C í 20 mínútur á blæstri.

Smjörkrem

  • Hrærið smjörið í hrærivél eða handþeytara þar til silkimjúkt.
  • Bætið flórsykrinum saman við.
  • Setjið vanilludropana ásamt rjómanum út í blönduna.
  • Matarlitirnir koma síðast.
  • Gott er að hræra smjörkremið saman vel og lengi svo það verði alveg slétt.
Smjörkrem

Samsetning

  • Setjið smjörkrem á milli botnanna og ofan á kökuna. Skreyið kökuna með lituðu smjörkremi og litlum súkkulaði eggjum, t.d. M&M eða Cadbury.
  • Til að fá ljósbleikan lit, blandið smá af rauðum lit út í hvítt smjörkremið. Fyrir fjólubláan bætið smá bláum út í ljósbeikt smjörkremið. Fyrir gulan lit, bætið gulum matarlit í hvítt smjörkrem.

Höfundur: Tinna Alavis