Menu
Ostakúla með beikoni og pekanhnetum

Ostakúla með beikoni og pekanhnetum

Skemmtileg viðbót á ostabakkann. 

Innihald

1 skammtar
Gamli rjómaosturinn frá Gott í matinn
poki dressing mix sommer
rifinn Óðals Cheddar
smátt saxaður vorlaukur
stökkt beikon, mulið (um 12 sneiðar)
saxaðar pekanhnetur

Aðferð

  • Setjið rjómaost og dressing mix saman í hrærivélina og hrærið með K-inu þar til vel blandað. Dressing mix fæst í flestum matvöruverslunum og er þar sem salatdressingarnar eru.
  • Bætið Cheddar osti, vorlauk (geymið samt um 1 msk. til að setja utan á) og helmingnum af beikoninu saman við og blandið áfram.
  • Setjið plastfilmu á borðið og setjið rjómaostablönduna ofan á. Vefjið plastinu utan um og myndið kúlu með því að þrýsta ostablöndunni saman. Kælið í að minnsta kosti klukkustund því það er auðveldara að rúlla kúlunni upp úr pekanhnetum þegar osturinn er aðeins stífari.
  • Hellið pekanhnetum, restinni af beikoninu og 1 msk. af söxuðum vorlauk í skál og hristið saman.
  • Takið rjómaostakúluna því næst úr plastinu og rúllið upp úr hnetublöndunni þar til vel hjúpuð. Færið þá yfir á fallegan disk og berið fram. Kúluna má einnig plasta og geyma í kæli þar til hún verður borin fram.
  • Berið fram með góðu kexi eða brauði.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir