Menu
Heit ostaídýfa með kryddostum - Ketó

Heit ostaídýfa með kryddostum - Ketó

Æðisleg ídýfa sem best er að njóta á meðan ídýfan er heit með brauði, kexi, selleríi eða því sem hugurinn girnist.

Innihald

6 skammtar
rifinn Mozzarellaostur frá Gott í matinn
Mexíkóostur frá MS
Óðals Havarti krydd
Gamli rjómaosturinn frá Gott í matinn
majónes
laukur
grænn chilli
kóríander

Aðferð

  • Hitið ofninn í 180 gráður eða grillið.
  • Rífið mexíkóost og Óðals Havarti krydd niður í skál og blandið saman við rifinn mozzarella.
  • Bætið rjómaosti við stofuhita saman við ásamt majónesi, smátt söxuðu chilli og lauk.
  • Hrærið öllu saman þar til allt hefur blandast vel.
  • Setjið í eldfast mót og hitið í rúmar 20 mínútur eða þar til osturinn er alveg bráðnaður.
  • Ef þið setjið ídýfuna á grillið er gott að hafa vægan hita á grillinu.
  • Skerið niður ferskan kóríander og stráið yfir ídýfuna.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir