Menu
Ostapasta með skinku

Ostapasta með skinku

Litríkur og bragðgóður pastaréttur. 

Innihald

1 skammtar
skrúfupasta
osta tortellini
brokkolíhaus
rauð paprika
laukur
Mexíkóostur frá MS
matreiðslurjómi frá Gott í matinn
skinka
Salt, pipar og hvítlauksduft eftir smekk
Olía til steikingar
Parmesan ostur til að rífa yfir

Skref1

  • Sjóðið báðar tegundir af pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
  • Saxið laukinn smátt og skerið brokkolí og papriku í hæfilega stóra bita.

Skref2

  • Steikið laukinn upp úr olíu, kryddið til með salti og pipar, bætið papriku og brokkolí saman við og vel af olíu. Steikið í stutta stund þar til grænmetið fer að mýkjast og færið þá yfir í skál.
  • Rífið mexíkóost niður með grófu rifjárni og sjóðið með rjómanum á pönnunni þar til osturinn er uppleystur. Kryddið til með salti, pipar og hvítlauksdufti.
  • Skerið skinkuna í teninga og setjið skinkuna, grænmetið og pastað út á pönnuna og blandið vel.

Skref3

  • Berið fram með vel af rifnum Parmesan osti eða Óðals Tindi.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir