Menu
Osta fondue og bakaður Gullostur

Osta fondue og bakaður Gullostur

Hentar fullkomlega í saumaklúbbinn eða sem notaleg fjölskyldumáltíð.

Innihald

4 skammtar
hvítvín
smjör
hveiti
rifinn Óðals Ísbúi
rifinn Óðals Tindur
rifinn Óðals Cheddar

Osta fondue

  • Hitið vín að suðu.
  • Bræðið smjör í potti við vægan hita, hrærið hveiti saman við og látið malla í nokkrar mínútur á meðan þið hrærið í.
  • Hellið þá víninu í smá skömmtum í einu út í hveitiblönduna og hrærið rösklega í þar til úr verður áferðarfallegur jafningur. Þá fer allur osturinn saman við.
  • Hrærið hann þar til hann er bráðinn saman við jafninginn.
  • Berið fram á hita, litlum potti sem stendur yfir kerti.
  • Best með góðu brauði, súrum gúrkum, ólífum, sultu fyrir þá sem það vilja.

Bakaður Dala Gullostur

  • Bakið Dala Gullost án þess að eiga nokkuð við hann.
  • Takið eingöngu límmiðann af álpappírnum. Það er ekki vitlaust að stinga nokkrum sinnum ofan í toppinn á honum með hnífsoddi en annars er pappírinn bara hafður opinn og osturinn settur í ofnfasta skál.
  • Hann er bakaður þar til hann er orðinn vel heitur og flæðandi.
  • Annað sem má gera er að hella yfir ostinn hunangi sem er með einhverju gúmmelaði saman við eins og t.d. (bragðbættu) hunangi áður en hann er settur inn í ofn.

Höfundur: Halla Bára Gestsdóttir