Menu
New York ostakökubollur með rjómaostafyllingu

New York ostakökubollur með rjómaostafyllingu

Innihald

1 skammtar

Vatnsdeigsbollur:

vatn
smjör
hveiti
salt
egg

Rjómaostafylling:

rjómi frá Gott í matinn
hreinn rjómaostur frá Gott í matinn
sykur
salt (sjávarsalt)
vanilludropar
Jarðarberjasulta
Flórsykur

Vatnsdeigsbollur

  • Sjóðið vatn og smjör saman í potti þar til smjörið hefur bráðnað.
  • Blandið hveitinu og saltinu saman við og hrærið rösklega þar til deigið sleppir pottinum og myndar kúlu úr deiginu.
  • Takið pottinn af eldavélinni, setjið deigið í aðra skál og látið kólna örlítið.
  • Þegar deigið hefur náð stofuhita er eggjunum bætt saman við, einu í senn og hrært varlega á milli með hrærivél.
  • Setjið smjörpappír á ofnplötu.
  • Setjið deigið í sprautupoka og sprautið því á plötuna með jöfnu millibili. 
  • Bakið við 200 gráðu hita í 20 mínútur, passa þarf að opna ofninn alls ekki fyrstu 15 mínúturnar af bakstirnum.
  • Látið bollurnar kólna alveg áður en sett er á þær.
  • Hitinn á bakaraofnum er mjög mismunandi, ef ykkur finnst bollurnar vera að brúnast heldur fljótt er gott að lækka hitann í 170 gráður eftir 5 mínútur.

Fylling

  • Þeytið rjómann þar til hann verður stífur og stendur, passið þó að þeyta hann ekki of mikið.
  • Þeytið rjómaostinn, sykur, salt og vanilludropa saman í annarri skál þar til blandan verður ljós og létt.
  • Blandið rjómanum varlega saman við með sleif þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Skerið bollurnar, setjið jarðarberjasultu í botninn, setjið rjómaostakrem á milli og lokið bollunni.
  • Skreytið bolluna með flórsykri.
  • Fallegt er að sprauta rjómaostakreminu á bolluna t.d. með sprautustút 1M.
  • Geymið í kæli þar til bollurnar eru bornar fram. 

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir