Menu
Mexíkóskur hamborgari

Mexíkóskur hamborgari

Mexíkóskir hamborgarar eins og þeir gerast bestir! Einföld uppskrift sem allir ráða við!

Innihald

1 skammtar
nautahakk
rauðlaukur (smátt skorinn)
rautt chili, fræhreinsað og smátt skorið
steikt og smátt skorið beikon
handfylli ferskt kóríander, smátt skorið
egg
brauðraspur, magn eftir smekk
rifinn Mexíkóostur frá MS
salt og pipar

Meðlæti:

Óðals Maribo ostur
salsa
guacamole
jalapeno
0• klettasalat
nachos flögur
sýrður rjómi frá Gott í matinn

Aðferð

  • Blandið öllum hráefnum saman í skál.
  • Brauðrasp eða hveiti bindur deigið betur saman svo notið eins mikið og ykkur finnst þið þurfa. Best er að nota hendurnar til verksins!
  • Mótið fjóra til fimm hamborgara.
  • Steikið hamborgarana upp úr olíu á pönnu í 3–4 mínútur á hvorri hlið, hitið brauðið aðeins í ofni áður en þið setjið kjötið á brauðið.
  • Berið borgarann fram með góðu meðlæti, sjá tillögu fyrir ofan.

Höfundur: Sævar Lárusson