Menu
Mexíkósk kjúklingasúpa að hætti Tinnu Alavis

Mexíkósk kjúklingasúpa að hætti Tinnu Alavis

Mexíkósk kjúklingasúpa sem klikkar seint. 

Innihald

4 skammtar

Hráefni:

kjúklingalundir/-bringur
rauðlaukur
hvítlauksrif (5-6 stk.)
ferskir plómutómatar
tómatsúpa með chilipipar (frá Sollu)
heilir plómutómar í dós
grænmetisteningar
paprikur
vatn
rjómi frá Gott í matinn
rjómaostur frá Gott í matinn
chili krydd, salt og pipar

Krydd:

chili explosion,

Meðlæti:

sýrður rjómi frá Gott í matinn, nachos (t.d. svartar Doritos) og rifinn Mozzarella

Skref1

  • Steikið kjúklingalundir upp úr íslensku smjöri og kryddið vel með chili kryddi, salti og pipar.
  • Þegar kjúklingurinn er steiktur í gegn er hann tekinn af pönnunni, skorinn í bita og settur til hliðar.

Skref2

  • Takið fram pott og steikið rauðlaukinn þar til hann er farinn að mýkjast og bætið þá við hvítlauk og papriku.
  • Þegar grænmetið er búið að malla á vægum hita í u.þ.b. 5 mínútur er tómatsúpunni og niðursoðnu tómötunum hellt út í pottinn ásamt einni öskju af ferskum tómötum og 300 ml af vatni.

Skref3

  • Leyfið súpunni að malla á miðlungs hita í 4-5 mínútur og bætið þá við 125 g af rjómaosti og 300 ml af rjóma.
  • Hrærið í súpunni þar til rjómaosturinn hefur bráðnað og setjið steikta kjúklinginn út í súpuna. Leyfið súpunni að malla áfram í 15 mínútur þannig að rétt sjóði í henni.
  • Berið fram með sýrðum rjóma, nachos og rifnum Mozzarella osti.

Höfundur: Tinna Alavis