Menu
Marengsterta - Cookies and Cream

Marengsterta - Cookies and Cream

Marengstertur klikka aldrei! Þær eru auðveldar í framkvæmd og möguleikarnir eru endalausir svo lengi sem maður er með egg, sykur og þeyttan rjóma við hönd.

Innihald

12 skammtar

Marengs

egg
sykur
lyftiduft
Rice Krispies
instant kaffiduft

Súkkulaðikrem

eggjarauður
flórsykur
dökkt súkkulaði
instant kaffiduft

Toppur

rjómi frá Gott í matinn, þeyttur
flórsykur
vanilludropar
Oreo kexkökur (176 g)
súkkulaðisíróp

Skref1

  • Hitið ofninn í 150 gráðu hita og setjið smjörpappír á bökunarplötu.
  • Þeytið eggjahvíturnar þar til þær verða að hálfgerðri froðu.
  • Bætið þá sykrinum samanum við 1 msk. í senn og hrærið vel á milli.
  • Hrærið þar til marengsinn verður stífur og stendur.

Skref2

  • Setjið lyftiduft saman við og hrærið vel.
  • Blandið því næst instant kaffidufti saman við ásamt Rice Krispies og hrærið með sleif þar til allt hefur náð að blandast vel saman.
  • Setjið marengsinn á bökunarplötuna og myndið jafnan hring, gott er að móta hring með t.d. hringlaga kökuformi.
  • Bakið í ca.50 mín. eða þar til marengsinn er þurr viðkomu.
  • Kælið marengsinn alveg og leyfið honum að jafna sig áður en þið takið hann af plötunni.

Skref3

  • Næst á dagskrá er súkkulaðikremið.
  • Þeytið eggjarauður og flórsykur saman þar til blandan verður ljós og létt.
  • Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði þar til það hefur bráðnað alveg.
  • Hellið saman við blönduna og hrærið súkkulaðið saman með sleif þar til allt hefur náð að blandast vel saman.
  • Smyrjið súkkulaðikreminu yfir botninn.

Skref4

  • Að lokum er það toppurinn á kökuna.
  • Þeytið rjóma þar til hann stendur.
  • Blandið saman flórsykri, kaffi og vanilla og hrærið saman með sleif.
  • Hakkið u.þ.b. helminginn af Oreo kexkökunum í matvinnsluvél þar til kexkökurnar eru orðnar fínmalaðar, blandið þeim saman við rjómann og hrærið með sleif.
  • Setjið rjómann ofan á botninn.
  • Grófsaxið restina af Oreo kexkökunum og setjið ofan á rjómann ásamt súkkulaðisírópi.
  • Þeir sem vilja ekta súkkulaði geta brætt 100 g af súkkulaði yfir vatnsbaði og slett yfir kökuna.
  • Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram.
  • Gott er að setja á botninn deginum áður.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir