Menu
Marengs súkkulaðikaka

Marengs súkkulaðikaka

Þetta er algjör draumur sem slær allt út þegar þið fáið þörf fyrir eitthvað sætt, djúsí og ógleymanlega gott! Lesið uppskriftina til enda áður en þið byrjið að baka.

Innihald

12 skammtar

Súkkulaðibotn

sykur
hveiti
dökkt kakó
matarsódi
lyftiduft
salt
egg
súrmjólk
olía
vanilludropar
kaffi

Súkkulaðikrem

eggjarauður (geymið eggjahvíturnar í marengsinn)
flórsykur
smjör
dökkt súkkulaði
vanilludropar

Marengs

eggjahvítur
sykur
lyftiduft
rice crispies

Fylling

jarðarber
Oreo kex
rjómi frá Gott í matinn

Skref1

  • Blandið saman sykri, hveiti, kakói, matarsóda, lyftidufti og salti í skál.
  • Blandið eggjunum saman við og hrærið léttilega, setjið svo strax súrmjólkina og olíuna saman við og hrærið léttilega.
  • Setjið því næst kaffið og vanilludropana saman við og hrærið á meðalhraða þar til allt hefur blandast vel saman. Passið ykkur að hræra ekki of lengi því þá getur kakan orðið seig. Deigið er mjög þunnt í sér.
  • Hellið deiginu í smurt meðalstórt hringlaga bökunarform og bakið við 180 gráður í rúmar 30 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar.
  • Kælið kökuna.

Skref2

  • Svo er það súkkulaðikremið.
  • Þeytið eggjarauðurnar og flórsykurinn saman þar til blandan er orðin ljós og létt.
  • Bræðið súkkulaðið ásamt smjörinu í potti yfir meðal hita og blandið svo saman við blönduna, bætið vanilludropum saman við.
  • Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Gott er að láta súkkulaðikremið standa í smá stund áður en það er sett á kökuna.
  • Smyrjið kreminu yfir kökuna og á hliðar hennar.

Skref3

  • Fyrir þá sem vilja bara súkkulaðiköku þá getið þið annað hvort bara haft súkkulaðikremið á kökunni, raðað jarðarberjum á kökuna eða sett bæði jarðarber og Oreo kex. En þeir sem vilja eitthvað aðeins meira bæta við rjómanum og marengsbotninum.
  • Þegar súkkulaðið er komið ofan á kökuna er fyllingin sett á.
  • Skerið jarðarberin niður í sneiðar og raðið fallega á kökuna, geymið restina svo til þess að setja ofan á kökuna.
  • Skerið Oreo kexið gróft niður og dreifið yfir jarðarberin.
  • Þeytið rjómann og smyrjið honum yfir allt.
  • Setjið marengsbotninn ofan á og skreytið að vild, t.d. með afgangi af jarðarberjunum og örlitlu bræddu súkkulaði (um 40 g af dökku súkkulaði).

Skref4

  • Til þess að marengs heppnist þá þarf að passa það að skálin sé mjög hrein annars gæti hann fallið.
  • Hrærið eggjahvíturnar og sykurinn saman þangað til blandan er orðin stíf.
  • Bætið lyftiduftinu saman við og hrærið vel.
  • Bætið rice crispies saman við og hrærið varlega saman með sleif.
  • Setjið smjörpappír á bökunarplötu, takið formið sem þið bökuðuð súkkulaðikökuna í og dragið hring á smjörpappírinn.
  • Dreifið úr marengsinum á hringinn og reynið að fara ekki útfyrir línurnar.
  • Bakið við 150 gráðu hita í rúmar 40 til 50 mín. eða þar til marengsinn er þurr viðkomu.
  • Kælið.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir