Menu
Maltesers ostakaka

Maltesers ostakaka

Þessi ostakaka er algjört sælgæti og sómar sér vel á hvaða veisluborði sem er.

Innihald

12 skammtar

Botn:

Maltesers
Íslenskt smjör, brætt
Sykur

Fylling:

Rjómaostur frá Gott í matinn
Rjómi frá Gott í matinn
Flórsykur
Vanillusykur
Malteserskúlur
Marssúkkulaði, brytjað

Marssósa:

Mars
Rjómi frá Gott í matinn

Botn

  • Myljið Malteserskúlurnar í matvinnsluvél.
  • Blandið sykri og bræddu smjöri saman við.
  • Setjið blönduna í smurt bökunarform eða eldfast mót og þrýstið henni í mótið og upp með brúninni.

Fylling

  • Þeytið rjómann og blandið rjómaosti saman við ásamt flórsykri og vanillusykri.
  • Hrærið blönduna vel og hellið í mótið.
  • Setjið Malteserskúlur hér og þar í fyllinguna ásamt brytjuðu marssúkkulaði.

Marssósa

  • Búið til marssósuna með því að hita marssúkkulaðið og rjóma.
  • Hellið marssósunni síðan yfir fyllinguna.
  • Kælið kökuna í frysti í nokkra klukkutíma.
  • Berið kökuna fram kalda. Kemur mjög vel út að sáldra muldu Maltesersi yfir kökuna.

Höfundur: Hjördís Dögg Grímarsdóttir