Menu
Lúxus fylltar sætar kartöflur

Lúxus fylltar sætar kartöflur

Virkilega vinsæll réttur sem skemmtilegt er að matreiða. Gott að bera kartöflurnar fram með fersku salati og/eða góðu brauði. Þessi uppskrift er fyrir tvo.

Innihald

2 skammtar
stór kjúklingabringa
stór sæt kartafla
nýrnabaunir
rauðlaukur
kókosmjólk, lítil dós
ostakubbur frá Gott í matinn (áður fetakubbur)
döðlur
rifinn gratínostur frá Gott í matinn
cayenne pipar og annað krydd eftir smekk

Skref1

  • Kartaflan er skorin í tvennt eftir endilöngu, pensluð með olíu og sett inn í ofn (hýðið upp) á 200° í klukkutíma eða þar til hún er orðin alveg mjúk í gegn.
Skref 1

Skref2

  • Þegar kartöflurnar hafa verið inni í um 40 mínútur er fínt að byrja að útbúa fyllinguna. Döðlurnar, laukurinn og nýrnabaunirnar eru skornar í litla bita.

Skref3

  • Kjúklingurinn er einnig skorinn í mjög litla bita og steiktur á pönnu upp úr olíu og kryddi.

Skref4

  • Þegar kjúklingurinn er orðinn eldaður í gegn er kókosmjólkinni, fetaostinum, döðlunum, lauknum og nýrnabaunum bætt út í og látið malla í 5-10 mínútur.
Skref 4

Skref5

  • Þegar kartaflan er tilbúin er skafið innan úr henni, t.d. er hægt að nota ísskeið. Það þarf að passa að skilja smá kartöflu eftir í köntunum svo það sé auðveldara að fylla hana. Það sem tekið er úr kartöflunni er blandað saman við fyllinguna á pönnunni og loks er öllu skóflað aftur upp í bátinn.
Skref 5

Skref6

  • Ostinum er stráð ofan á og kartöflurnar settar inn í ofn í 10 mínútur eða þar til osturinn er alveg bráðnaður.

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir