Menu
Skýjasnittur með Dala Brie - Ketó

Skýjasnittur með Dala Brie - Ketó

Bragðgóðar skýjasnittur (18-20 stk)sem henta vel sem forréttur eða smáréttur á veisluborðið og ekki er nú verra að þær eru Ketó. 

Innihald

1 skammtar

Snittur (cloud bread):

stór egg (við stofuhita)
grísk jógúrt frá Gott í matinn (við stofuhita)
lyftiduft

Pestó:

askja af ferskri basilíku
hvítlauksrif
rifinn parmesan ostur
ólífuolía (um 3 msk.)
Salt og pipar

Álegg:

Sveitaskinka, salami, hráskinka eða annað kjötálegg
Dala Brie ostur skorinn í sneiðar

Skref1

  • Hitið ofninn 150°C og klæðið bökunarplötu með bökunarpappír.

Skref2

  • Skiljið eggin og hafið hvítur í annarri skál og rauður í hinni.
  • Þeytið saman eggjarauður og gríska jógúrt þar til kekkjalaus og örlítið froðukennd blanda hefur myndast.
  • Þeytið því næst eggjahvítur og lyftiduft saman þar til stífþeytt.
  • Vefjið þá eggjahvítublöndunni varlega saman við eggjarauðublönduna og varist að hræra of mikið en þó nægilega mikið til að jöfn blanda myndist. Ef það er hrært of lengi gæti það valdið því að brauðið fellur og flest út.
  • Skammtið góðar kúlur á bökunarpappír með matskeið og fletjið örlítið út.
  • Bakið í um 18-22 mínútur eða þar til brauðið er farið að gyllast, gott er að strá grófu salti yfir brauðið um leið og það kemur úr ofninum og færið það síðan yfir á kæligrind á meðan pestó og álegg er útbúið.

Skref3 - pestó

  • Rífið ostinn og setjið basiliku, hvítlauksrif og ost í matvinnsluvél og maukið vel.
  • Hellið ólífuolíu saman við í litlum skömmtum þar til þykktin er góð og smakkið til með salti og pipar.
  • Gott er smyrja vel af pestó á hvert brauð og því næst setja skinku og Dala brie þar ofan á.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir