Menu
Rjómalagaður dijon kjúklingur - Ketó

Rjómalagaður dijon kjúklingur - Ketó

Einstaklega góður og ketó vænn réttur sem hentar jafnvel sem fínni réttur í matarboðum og hversdags.

Gott að bera fram með blómkálsmús með sýrðum rjóma og vorlauki.

Innihald

4 skammtar
Úrbeinuð kjúklingalæri
Rauðlaukur
Timjan (ferskt eða þurrkað)
Hvítvín (má sleppa og nota bara kjúklingasoð)
kjúklingasoð (vatn og kjúklingakraftur)
Dósir sýrður rjómi 36% frá Gott í matinn
Dijon sinnep (2-3 msk. og gott að nota gróft og venjulegt til helminga)
Salt og pipar
Smjör til steikingar
Fersk steinselja

Skref1

  • Byrjið á að hita pönnu með dálitlu smjöri, kryddið kjúklinginn með salti og pipar og steikið báðum megin þar til vel brúnaður. Setjið á disk og lækkið aðeins hitann á pönnunni.

Skref2

  • Steikið laukinn í 2-3 mínútur eða þar til hann mýkist aðeins. Kryddið með timían, salti og pipar.

Skref3

  • Hellið hvítvíni og kjúklingasoði á pönnuna, skafið vel botninn og leyfið að sjóða í nokkrar mínútur.
  • Bætið þá sýrða rjómanum út á ásamt Dijon sinnepi. Leyfið aðeins að malla og smakkið ykkur til.

Skref4

  • Setjið að lokum kjúklinginn út í sósuna og leyfið að eldast í um það bil 10 mínútur við meðalhita.
  • Stráið ferskri steinselju yfir að lokum og berið fram.
Skref 4

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir