- Vanilluskyrísterta með súkkulaðibotni
- Þriggja hæða marens með súkkulaðikremi og súkkulaðieggjahreiðri

Einfalt
Vatnsdeigsbollur
Innihald
3 dl vatn
130 g smjör
190 g hveiti
5 stk. egg
Súkkulaðibráð
200 g suðusúkkulaði
1 dl rjómi frá Gott í matinn
Aðferð:
Bollur
Setjið saman vatn og smjör í pott og látið suðuna koma upp. Bætið í hveiti og hrærið vel í með sleif. Hrærið þar til deigið hefur samlagast vel. Takið af hitanum og kælið örlítið. Bætið loks eggjum, einu í einu og hrærið vel á milli. Sprautið á plötu eða setjið með skeið. Gætið að því að bollurnar verði ekki of stórar, um munnbiti. Bakið við 180°C í 15-18 mínútur
Súkkulaðibráð
Bræðið saman rjóma og súkkulaði. Látið standa smá stund og setjið svo ofan á bollurnar.
Hægt er að skreyta bollurnar með súkkulaði- eða lakkrískurli.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson