Menu
Toblerone súkkulaðiterta

Toblerone súkkulaðiterta

Þessi uppskrift miðast við tvo botna, en það er auðvelt að stækka uppskriftina og gera eina og hálfa eða tvöfalda uppskrift eftir því hvert tilefnið er. Botnarnir á meðfylgjandi mynd eru gerðir úr einni og hálfri uppskrift svo kakan verði stærri og hærri.

Innihald

12 skammtar
sykur
hveiti
kakó
lyftiduft
matarsódi
salt
egg
mjólk
matarolía (ekki nota olífuolíu)
vanilludropar
sjóðandi vatn
smjör við stofuhita
mjólk
vanilludropar
salt
flórsykur
Toblerone
Toblerone til skrauts

Botn

  • Hitið ofninn í 180°.
  • Öllum þurrefnunum er blandað saman í hrærivélarskál, næst fer mjólkin, eggin, olía og vanilludroparnir og hrært vel. Í lokinn er sjóðandi vatninu brætt saman við og hrært varlega.
  • Deigið er sett í tvö vel smurð form og inn í ofn í 25-30 mínútur.
  • Þegar botnarnir koma út er gott að láta þá standa í formunum í 20 mínútur áður en kakan er tekin úr og hún látin kólna alveg áður en kremið er sett á.

Toblerone smjörkrem

  • Smjörið, flórsykri, salti, vanilludropum og mjólk er hrært saman í hrærivélinni þar til kremið er orðið mjúkt og kekkjalaust.
  • Toblerone súkkulaðið er brætt yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Súkkulaðið á ekki að sjóða bara rétt að bráðna og því er síðan hellt út í kremið og þeytt vel.

Samsetning

  • Kremið er borið á kökuna en ég nota sprautupoka svo að kremið verði jafnara milli botnanna.
  • Kökuna er hægt að skreyta að vild með mulnu Toblerone og hægt að leika sér með kremið.

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir