Menu
Sykurlaus vanillu rúlluterta með hindberjakremi

Sykurlaus vanillu rúlluterta með hindberjakremi

Dásamlega góð og sykurlaus rúlluterta sem gleður einnig augað.

Innihald

12 skammtar
egg, aðskilja eggjahvítur og rauður
hreinn rjómaostur frá Gott í matinn
18% sýrður rjómi frá Gott í matinn
vínsteinslyftiduft eða venjulegt
vanillustöng
sukrin melis eða flórsykur fyrir þá sem eru ekki að reyna að draga úr sykri

Krem:

hreinn rjómaostur frá Gott í matinn
frosin hindber
sukrin melis
rjómi frá Gott í matinn

Kaka

  • Stífþeytið eggjahvítur með lyftiduftinu og setjið til hliðar.
  • Rjómaostur, eggjarauður, sýrður rjómi, sukrin melis og fræ úr vanillustöng þeytt vel saman.
  • Bætið eggjahvítum við með sleif og blandið vel en varlega.
  • Notið smjörpappír eða bökunarpappír sem búið er að smyrja með olíu (t.d. avocado olíu) og fyllir heila ofnskúffu. Dreifið sukrin yfir pappírinn og setjið svo deigið.
  • Bakið við 175 gráður í um 9-12 mínútur eða þar til gyllt.

Krem

  • Þeytið saman rjómaost og sukrin melis.
  • Maukið berin þegar þau eru hálfþiðnuð eða alveg þiðin og sigtið fræin frá. Bætið við skálina og þeytið saman. Í lokin er rjóma bætt út í og þeytt saman þar til kremið verður stíft.
  • Dreifið kreminu á tertubotninn þegar hann er orðinn kaldur og rúllið honum upp. Gott er að nota pappírinn til að hjálpa sér að rúlla upp.
  • Stráið sukrin yfir tertuna.

Höfundur: Hafdís Priscilla Magnúsdóttir