Menu
Súkkulaðimarengs með jarðarberjum

Súkkulaðimarengs með jarðarberjum

Innihald

12 skammtar
eggjahvítur
sykur
kakó
dökkt súkkulaði

Súkkulaði:

eggjarauður
flórsykur
dökkt súkkulaði

Rjómablanda:

rjómi frá Gott í matinn
flórsykur

Toppur:

jarðarber og rifið súkkulaði til skrauts

Skref1

  • Hitið ofninn í 150 gráður (með blæstri) og setjið smjörpappír á tvær bökunarplötur.
  • Myndið tvo jafnastóra hringi á smjörpappírinn.

Skref2

  • Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið svo sykrinum rólega saman við, smátt og smátt í einu.

Skref3

  • Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og kælið.
  • Blandið kakó saman við og hrærið vel.

Skref4

  • Blandið bræddu súkkulaði saman við og hrærið léttilega með sleif.

Skref5

  • Setjið marengsinn á bökunarplöturnar og myndið tvo jafnstóra hringi.
  • Bakið marengsinn í um 1 klst. og 15 mínútur eða þar til marengsinn er alveg þurr viðkomu.
  • Marengsinn er mjög brothættur.
  • Kælið botnana alveg áður en þið setjið á þá.

Súkkulaði- og rjómablanda

  • Þeytið eggjarauður ásamt flórskyri þar til blandan verður ljós og létt.
  • Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og kælið.
  • Blandið því saman við og hrærið varlega með sleif.
  • Setjið súkkulaðið á báða botnana.
  • Þeytið rjómann þar til hann er orðinn stífur og stendur, passið ykkur þó að þeyta hann ekki of mikið.
  • Blandið flórsyri saman við og hrærið saman með sleif.

Samsetning

  • Setjið rjómann á annan botninn, setjið hinn ofan á og setjið restina af rjómanum ofan á toppinn.
  • Skerið niður jarðarber eða þau ber sem þið viljið heldur og setjið ofan á rjómann.
  • Skreytið með súkkulaðispónum.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir