Menu
Súkkulaði ostakaka

Súkkulaði ostakaka

Virkilega góð með ískaldri mjólk og meiri rjóma.

Innihald

12 skammtar

Botn:

Smjör
Oreo kexkökur

Fylling:

Rjómi frá Gott í matinn
Flórsykur
Rjómaostur frá Gott í matinn
Sýrður rjómi frá Gott í matinn
Dökkt súkkulaði
Mini egg

Toppur:

Rjómi frá Gott í matinn, þeyttur
Mini egg

Botn

  • Hakkið Oreokexkökur í matvinnsluvél, bræðið smjör og blandið saman við.
  • Setjið smjörpappír í hringlaga bökunarform, 22 cm að stærð og þrýstið Oreokexblöndunni ofan í botninn á forminu, gott er að nota botinn af t.d. glasi.
  • Setjið formið inn í frysti á meðan að þið undirbúið ostakökuna.

Fylling

  • Þeytið rjómann þar til hann stendur.
  • Þeytið rjómaostinn í hrærivél þar til hann er orðinn mjúkur og sléttur.
  • Bætið flórsykri og sýrðum rjóma saman við og hrærið vel.
  • Bræðið súkkulaðið í potti undir lágum hita þar til það hefur bráðnað. Blandið súkkulaðinu saman við ostablönduna og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Blandið ostablöndunni og rjómanum saman við og hrærið með sleif.
  • Grófsaxið mini eggin og blandið saman við ostablönduna.
  • Hellið ostablöndunni ofan í bökunarformið og kælið í það minnsta 4 klst.
  • Skreytið með þeyttum rjóma og mini eggjum.
  • Skerið í sneiðar og berið fram.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir